Persónuvernd

Persónuvernd

Hér er lýst hvaða persónuupplýsingar Bprof.is safnar, til hvers þær eru notaðar og hversu lengi þær eru geymdar.

Umsókn um ökunám

Þegar sótt er um ökunám á vefnum eru skráð nafn, kennitala, símanúmer, netfang, heimilisfang og valinn ökukennari. Sé umsækjandi yngri en 18 ára, eru sömu upplýsingar einnig skráðar um forráðamann. Þessar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að afgreiða umsóknina. Þær berast völdum ökukennara svo hann geti haft samband og hafið kennslu og eru sýnilegar kerfisstjóra Bprof.is. Þær eru aldrei seldar eða afhentar öðrum aðilum.

Sé umsókn ekki afgreidd (hvorki samþykkt né hafnað) eyðist hún sjálfkrafa 90 dögum eftir að hún barst. Sé henni hafnað eyðist hún sjálfkrafa 30 dögum eftir það. Sé hún samþykkt verður umsækjandinn skráður ökunemi og er þá umsóknin eytt 30 dögum síðar, enda eru upplýsingarnar komnar til ökukennarans.

Aðgangur ökunema og ökukennara

Sömu grunnupplýsingar eru geymdar á meðan aðgangur er í notkun, auk gagna sem verða til í náminu sjálfu (ökutímar, gátlisti, akstursmat). Notandi sem hefur ekki skráð sig inn lengi getur verið fjarlægður úr kerfinu. Ef einstaklingur óskar eftir að aðgangi sé eytt fyrr þarf að hafa samband við bprof.is.

Spurningar og fyrirspurnir

Fyrirspurnir um eigin persónuupplýsingar, eða beiðni um að fá þeim eytt, má senda á bprof@bprof.is.