Ökukennarar

Elín Esther Magnúsdóttir Elín Esther Magnúsdóttir Höfuðborgarsvæðið, Suðvesturland

Ég heiti Elín Esther Magnúsdóttir og er löggiltur ökukennari frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Ég bý í Tjarnabyggð í Árborg. Ökutímarnir fara fram á Selfossi.

Fyrir utan áratuga reynslu af leiðbeinendastörfum með börnum og unglingum hef ég líka víðtæka reynslu af akstri og umferð, allt frá því að reynsluaka bílum fyrir fjölmiðla yfir í að keyra breytta björgunarsveitarbíla við mjög krefjandi aðstæður þegar mikið liggur við.

Kennt er á Kia Sportage. Bíllinn er beinskiptur og fjórhjóladrifinn.

Nánari upplýsigar er að finna á okutimar.is

Elín Esther Magnúsdóttir Elín Esther Magnúsdóttir - Kennslubíll

Sími: 694 7614 Netfang: okutimar@gmail.com

Frímann B Baldursson Frímann Birgir Baldursson Suðvesturland

Ég heiti Frímann Baldursson og kenni til almennra ökuréttinda (B-flokk). Ég útskrifaðist úr ökukennaranáminu í desember 2019 og hóf kennslu í kjölfarið á því.

Ég er búsettur á Selfossi og mun aðallega kenna á því svæði og í nágrenni en einnig á höfuðborgarsvæðinu sé þess óskað.

Ég hef starfað í lögreglunni í rúm 30 ár og vinn við það samhliða ökukennslunni. Ég er einn af forgangsakstursþjálfurum lögreglunnar og kenni jafnt lögreglunemum sem og starfandi lögreglumönnum. Þá kenni ég einnig bókleg fög í námi til aukinna ökuréttinda og í endurmenntun atvinnubílstjóra.

Hægt er að hafa samband við mig í síma 835 3700 eða með því að senda tölvupóst á frimann@bprof.is.

Kennslubíllinn er Mazda 3, Exclusive-Line, árgerð 2024. Bíllinn er framhjóladrifinn og beinskiptur.

Helstu tæknilegar upplýsingar:

  • Vél: 4 strokka, bensín/rafmagn 1.998 rúmsentimetrar, 150 hestöfl
  • Eyðsla í blönduðum akstri: 5,5 l/100km
  • Fjöldi gíra: 6, beinskipting
  • Eiginþyngd: 1.433 kg
  • Heildarþyngd: 1.875 kg
  • Þyngd hemlaðs eftirvagns: 1.300 kg
  • Þyngd óhemlaðs eftirvagns: 600 kg
Frímann B Baldursson Mazda 3

Sími: 835 3700 Netfang: frimann@bprof.is

Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson Höfuðborgarsvæðið

Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson er ökukennari í Höfuðborgarsvæðinu og hefur starfað við ökukennslu frá árinu 2019. Hann kennir til B-réttinda, bæði á beinskipta og sjálfskipta bifreið.

Hreiðar hefur einnig sinnt akstursmati og umferðarfræðslu og starfar sem stundakennari í EHÍ þar sem hann undirbýr nýja ökukennara til starfa. Hann starfar einnig sem stundakennari við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu í fornámi ökukennslu.

Hreiðar hefur fjölbreyttan bakgrunn úr fræðslu-, félags- og stjórnunarstörfum og leggur áherslu á að undirbúa nemendur vel fyrir bæði ökuprófið og öruggan akstur í umferðinni.

Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson

Sími: 820 1616 Netfang: hzoega@gmail.com

Sverrir Guðfinnsson Sverrir Guðfinnsson Höfuðborgarsvæðið

Er ökukennari (B-réttindi) og kenni nemum á öllum aldri. Tek einnig að mér akstursmat. Kenni á sjálfskiptan Polestar 2. Frábær og mjög öruggur bíll sem er gott að læra á.

Sverrir Guðfinnsson STG72

Sími: 6927722 Netfang: sverrir.gudfinnsson@gmail.com