Fyrsti hluti ökunámsins
Kennsluakstur með ökukennara (verklegt ökunám) er á bilinu 17 – 25 kennslustundir. Bóklegt nám er alls 25 kennslustundir.
Þegar einstaklingur er orðinn 16 ára gamall er hægt að hefja ökunám. Byrjað er að hafa samband við ökukennara sem útskýrir hvernig ökunámi er háttað. Því næst er sótt um námsheimild. Það er gert á netinu á island.is. Eftir að sótt hefur verið um þarf að fara með ljósmynd (35*45mm) inn á næstu skrifstofu Sýslumanns. Þegar námsheimild hefur verið meitt, er hún um leið heimild til próftöku og þá fyrst má hefja kennsluakstur hjá ökukennaranum. Með rafrænni umsókn um námsheimild þurfa eftirfarandi gögn að fylgja:
- Passamynd (35 x 45 mm) af umsækjanda, á ljósmyndapappír, merkja- og stimplalaus og bakgrunnur skal vera einlitur. Ekki er heimilt að senda mynd rafrænt og ekki er mögulegt að notast við myndir sem teknar hafa verið til afnota í vegabréf.
- Læknisvottorð frá heimilislækni eða viðeigandi sérfræðilækni, ef einhverri spurningu er svarað játandi í heilbrigðisyfirlýsingu.
- Læknisvottorð frá heimilislækni eða augnlækni ef viðkomandi notar gleraugu eða linsur, hefur skerta sjón eða skert sjónsvið.
Ljúka þarf að lágmarki 10 kennslustundum hjá ökukennara áður en hægt er að byrja æfingaakstur með leiðbeinanda en reynslan er sú að yfirleitt hefst slíkur æfingarakstur eftir ca. 12 kennslustundir. Þar að auki þarf að ljúka ökuskóla 1 (12 kennslustundir) og er kostnaðurinn mismunandi eftir því hvaða ökuskóli er valinn. Flestir kjósa að taka ökuskóla 1 á netinu. Nokkrir netökuskólar eru starfræktir m.a.:
Einnig er hægt að fara á námskeið sem kennt er í stofu ef það hentar betur. Nokkrir ökuskólar bjóða upp á slíka kennslu og mun ég veita frekari upplýsingar og aðstoða við að finna slíkt námskeið þegar að því kemur. Nám í Ökuskóla 1 hefst fljótlega eftir að verkleg kennsla byrjar, yfirleitt eftir 2 – 4 kennslustundir.
Æfingaakstur með leiðbeinanda
Æfingaakstur með leiðbeinanda kemur ekki í stað æfingaaksturs með ökukennara heldur sem viðbótaræfing. Í æfingaakstri telst leiðbeinandi vera stjórnandi bifreiðar.
Skilyrði leyfis er að leiðbeinandi sé orðinn 24 ára, hafi í a.m.k. fimm ár haft gilt ökuskírteini fyrir B-flokk og hafi ekki á síðustu tólf mánuðum verið án ökuskírteinis vegna sviptingar ökuréttar eða verið refsað fyrir vítaverða aksturshætti. Leyfið má gefa út til allt að 15 mánaða. Sýslumaður getur afturkallað leyfið, fylgi leiðbeinandi ekki reglum um æfingaakstur eða fullnægi ekki lengur skilyrðum leyfis.
Leiðbeinandi skal hafa leyfið meðferðis við æfingaakstur. Honum er óheimilt að taka endurgjald fyrir að leiðbeina umsækjanda.
Nemandi sem er að læra á beinskiptan bíl má fara í æfingaakstur með leiðbeinanda á sjálfskiptan bíl.
Síðari hluti ökunáms og prófin
Um það bil 2 – 3 mánuðum fyrir 17 ára aldurinn halda verklegar kennslustundir áfram hjá ökukennara, en þær þurfa að vera að minnsta kosti 4 talsins. Á sama tíma þarf ökuneminn að ljúka Ökuskóla 2 (10 kennslustundir). Þá þarf hann einnig að sækja nám í Ökuskóla 3 sem telur 2 verklegar kennslustundir sem teljast hlutu af verklegu námi og 3 bóklegar kennslustundir. Bóklegt próf má taka 2 mánuðum fyrir 17 ára aldurinn. Eftir að ökunemi hefur klárað lágmarks kennslustundir í verklegu námi og staðist bóklegt próf sem fram fer hjá Frumherja má hann taka verklegt próf en þó ekki fyrr en 2 vikum fyrir 17 ára afmælið.
Þegar ökunemi hefur staðist próf fær hann útgefið bráðabirgðaökuskírteini sem gildir í 3 ár. Þó svo neminn sé kominn með ökuréttindi þá er litið svo á að á gildistíma þess skírteinis sé hann á reynslutíma og að ökunáminu sé ekki formlega lokið fyrr en við útgáfu fullnaðarskírteinis. Hægt er að sækja um fullnaðarskírteini eftir 12 mánuði ef ökuneminn hefur ekki fengið refsipunkt í ökuferilskrá og viðkomandi hefur farið í akstursmat hjá ökukennara.
Verð fyrir bílprófið
Hjá mér kostar ökutíminn í kennslubifreið 14.000 kr. Hver tími er að jafnaði 45 mínútur.
Annar kostnaður:
- Ökuskóli 1: 9.900 – 13.500 (Netökuskólar, sjá hér að ofan).
- Ökuskóli 2: 8.900 – 13.500 (Netökuskólar, sjá hér að ofan)
- Ökuskóli 3: 45.000.
- Námsheimild og útgáfa fyrsta ökuskírteinis: 4.300.
- Prófgjald til Frumherja f/bóklegt próf: 6.550.
- Prófgjald til Frumherja f/verklegt próf: 17.370.
Reikna má með að allt ökunámið með öllum kostnaði sé um 290.000 – 310.000 en það fer eftir því hvaða ökuskóli verður fyrir valinu og hversu marga verklega ökutíma þarf að taka.