Kennslubíllinn
Kennslubíllinn er Mazda 3, Exclusive-Line, árgerð 2024. Bíllinn er framhjóladrifinn og beinskiptur.
Helstu tæknilegar upplýsingar:
- Vél: 4 strokka, bensín/rafmagn 1.998 rúmsentimetrar, 150 hestöfl
- Eyðsla í blönduðum akstri: 5,5 l/100km
- Fjöldi gíra: 6, beinskipting
- Eiginþyngd: 1.433 kg
- Heildarþynd: 1.875 kg
- Þyngd hemlaðs eftirvagns: 1.300 kg
- Þyngd óhemlaðs eftirvagns: 600 kg
Undirbúningur fyrir munnlegt próf
Ljós, ljósarofar og virkni þeirra
Aðalljósarofi
Ljósarofinn í Mazda 3 er vinstra megin við stýrið. Á honum eru fjórar stillingar, OFF, AUTO, stöðuljós og öll ljós.
OFF
Þegar ljósarofinn er á OFF (Af) þá eru öll ljós á bílnum slökkt. Áður en við slökkvum á bílnum og göngum frá honum þá setjum við á þessa stillingu.
AUTO
Þegar ljósarofinn er á AUTO (Sjálvirk) stillingu er slökkt á öllum ljósum bílsins þegar bjart er úti. Um leið og skyggja fer kveikna öll ljósin. Efst á framrúðunni, fyrir miðju, er skynjari sem nemur birtustigið og kveikir eða slekkur ljósin þegar birtustig hefur náð ákveðnu magni. Að kvöldlagi eða í myrkri þá virkar einnig sjálfvirknin fyrir háa ljósgeislan. Þannig slekkur bíllinn á háa ljósgeislanum þegar skynjarinn nemur ljós frá öðrum bifreiðum og kveikur þau aftur þegar engin bifreið er framundan. Við notum þessa stillingu ekki að degi til þar sem að það er skylda að hafa aðalljósin kveikt við akstur. Við meigum eingöngu nota þessa stillingu þegar það er orðið skuggsýnt í umhverfinu og þá til að nota sjálfvirknina fyrir háa og lága ljósgeislann.
Stöðuljós, afturljós og númeraljós
Í þessari stillingu er eingöngu kveikkt á stöðuljósum að frama,afturljósunum og á ljósi yfir númeraplötu að aftan.
- Stöðuljósin eru hvít ljós á sitthvoru framhorni bílsins.
- Afturljósin eru rauð ljós sem eru aftan á bílnum.
- Númeraljósið er hvítt og lýsir upp númeraplötuna að aftan.
Við getum notað þessa stillingu þegar við erum búin að stoppa bílinn.
Öll ljós kveikt
Þetta er stillingin sem við notum við akstur. Nú eru öll ljósin á bílnum kveikt.
- Aðalljósin eru hvít ljós sem við notum við akstur, lágu ljósin og háu ljósin.
- Stöðuljósin eru hvít ljós á sitthvoru framhorni bílsins.
- Afturljósin eru rauð ljós sem eru aftan á bílnum.
- Númeraljósið er hvítt og lýsir upp númeraplötuna að aftan.
Í mæalaborðinu sést grænt gaumljós sem gefur til kynna að aðalljósin séu kveikt.
Ath: Á kennslubílnum er það þannig að þegar slökkt er á bílnum og ljósarofinn er í þessari stillingu þá slökkna öll ljós bílsins.
Hái og lági ljósgeislinn
Rofinn fyrir há og lága ljósgeislann er í stönginni fyrir aðalljósarofann.
Kveikt og slökkt á háa ljósgeislanum.
Til þess að setja háu ljósin á þufa aðalljósin að vera kveikt. Stönginni er ýtt frá stýrinu eins og sést á mynd 5, úr stöðu 2 í stöðu 1. Til þess að skipta aftur yfir á lágan ljósgeisla er stöngin dregin til baka að stýtinu, útstöðu 1 í stöðu 2.
Blátt gaumljós gefur til kynna þegar kveikt er á háa ljósgeislanum. Sjá mynd 7.
Ath. Háa ljósgeislann má ekki nota innan þéttbýlis.
Háa ljósgeislanum blikkað.
Stundum þarf að vekja athygli á okkur í umferðinni og þá er hægt að nota háa ljósgeislann með því að blikka eða skipta nokkrum sinnum á milli háa og lága ljósgeislanns. Það er gert með því að draga stöngina að stýrinu og sleppa henni eins og sést á mynd 6, út stöðu 1 í stöðu 2. Stönginn festist ekki í þessari stöðu heldur gengur sjálf til baka.
Við gætum þurft að nota þetta t.d. þegar ökumaður sem ekur á moti okkur hefur gleymt að lækka háa geislann og þegar við erum að taka fram út bifreið.
Undirbúningur fyrir munnlegt próf
Aðalljósarofi
Þegar ljósarofinn er á OFF (Af) þá eru öll ljós á bílnum slökkt. Áður en við slökkvum á bílnum og göngum frá honum þá setjum við á þessa stillingu.
Ljósarofinn í Mazda 3 er vinstra megin við stýrið. Á honum eru fjórar stillingar, OFF, AUTO, stöðuljós og öll ljós.
Til þess að setja háu ljósin á þufa aðalljósin að vera kveikt. Stönginni er ýtt frá stýrinu eins og sést á mynd 5, úr stöðu 2 í stöðu 1. Til þess að skipta aftur yfir á lágan ljósgeisla er stöngin dregin til baka að stýtinu, útstöðu 1 í stöðu 2.
Blátt gaumljós gefur til kynna þegar kveikt er á háa ljósgeislanum. Sjá mynd 7.
Ath. Háa ljósgeislann má ekki nota innan þéttbýlis.
Rofinn fyrir há og lága ljósgeislann er í stönginni fyrir aðalljósarofann.
Neque porro quisquam est, qui dolorem ipsum quia dolor sit amet, consectetur, adipisci velit, sed quia non numquam eius modi tempora incidunt ut labore et dolore magnam aliquam quaerat voluptatem. Ut enim ad minima veniam, quis nostrum exercitationem ullam corporis suscipit.